Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 10. mars 2010 09:45
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Mick McCarthy: Það verður erfitt að halda Doyle
Mick McCarthy, stjóri Wolves, segir að það sé nokkuð ljóst að Kevin Doyle muni fara frá félaginu ef það fellur úr ensku úrvalsdeildinni.

Doyle hefur leikið vel með Wolves síðan að hann kom til félagsins frá Reading síðastliðið sumar.

Doyle hefur skorað alls sex mörk í vetur og McCarthy segir að nokkur félög hafi sýnt honum áhuga.

,,Ef við förum niður þá eigum við engan möguleika á að halda honum," sagði McCarthy.

,,Ef við höldum okkur uppi gætum við ennþá lent í vandræðum því að nokkur félög hafa áhuga."
Slapp
banner
banner