Heimild: BBC
Þá er komið að helsta slúðrinu úr enska boltanum en pakkinn er í boði Powerade.
Manchester City vill fá Daniel Carrico varnarmann Sporting Lisabon til að vera varaskeifa fyrir Kolo Toure og Joleon Lescott. Atletico Madrid og Valencia eru einnig á eftir Carrico. (Daily Mirror)
Njósnarar frá City hafa einnig hrifist af Andrea Poli miðjumanni Sampdoria. (Daily Mail)
Mick McCarthy, stjóri Wolves, segir að félagið geti ekki haldið Kevin Doyle ef að fall verður niðurstaðan í vor. Aston Villa, Fulham, Everton og Sunderland hafa áhuga á Doyle. (Daily Mirror)
Wilson Palacios hefur sagt að hann hafi farið til Tottenham til að reyna að komast til Real Madrid. Tottenham keypti Palacios frá Wigan á tólf milljónir punda fyrir rúmu ári síðan en þessi 25 ára leikmaður stefnir hærra. (The Sun)
Michael Ballack kom til Chelsea fyrir fjórum árum og fékk samning upp á 121 þúsund pund í vikulaun. Þjóðverjinn hefur núna fengið boð um eins árs samning með helmingi lægri launum. (The Sun)
Chelsea hefur hafið samningsviðræður við Nicolas Anelka að nýju. Samningur Anelka á að renna út 2012 en Chelsea vill framlengja til 2013. Ekkert heyrist hins vegar að samningamálum Joe Cole en hann verður samningslaus í sumar. (Daily Mail)
Aukin öryggisgæsla verður í kringum enska landsliðið á næstunni eftir að sex tíma upptaka af samtölum leikmanna og þjálfara lak út. Enska knattspyrnusambandið ætlar að finna þann sem að tók upptökurnar upp. (Daily Mail)
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, mun ekki fá refsingu fyrir að sýna Andre Marriner ,,V-merki" í leiknum gegn Wigan í fyrrakvöld. (Daily Telegraph)
Andy Griffin, hægri bakvörður Stoke, hefur hlegið af orðrómi um að hann gæti komist í enska landsliðshópinn á HM eftir góða frammistöðu með Reading þar sem að hann er í láni. (Daily Mirror)
Victor Moses, framherji Wigan, gæti farið með Nígeríu á HM í sumar. Moses fæddist í Nígeríu en hefur leikið með yngri landsliðum Englendinga. Hann hefur boiðið forráðamönnum nígeríska knattspyrnusambandsins að horfa á sig æfa og spila með Wigan. (Daily Mirror)
Stærsta vandamál Fabio Capello fyrir HM er markvarðarstaðan en þetta segir tennis goðsögnin Bois Becker sem að snæddi með Capello á dögunum. ,,Ég skil af hverju leikmenn eru svolítið hræddir við hann því að hann er mjög alvarlegur maður sem að grínast ekki mikið. Við töluðum um markverði og Capello brosti bara svo við fóru ekki lengra með þá umræðu." (Press Association)


