Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 10. mars 2010 10:36
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sporting Life 
Ronaldinho: Lykillinn að sigra er að stöðva Rooney
Ronaldinho, leikmaður AC Milan, segir að liðið verði að passa vel upp á Wayne Rooney framherja Manchester United í leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

United er með 3-2 forskot eftir fyrri leikinn en Ronaldinho hefur trú á að AC Milan geti klárað dæmið ef að liðinu tekst að halda Rooney niðri.

,,Rooney var ótrúlegur í fyrri leiknum. Við höfum horft á myndbönd úr leiknum og lykillinn að sigri fyrir okkur verður að koma í veg fyrir að hann fái boltann nálægt vítateignum," sagði Ronaldinho.

,,Ef við getum stöðvað hann þá aukast möguleikar okkar. Við getum unnið United."

,,Fyrir mér er þetta eins og sjálfur úrslitaleikur Meistaradeildarinnar. Ég sé fram á fjörugan leik með mörgum mörkum."

Slapp
banner
banner
banner