Heimild:  
mið 10.mar 2010 11:03 Magnús Már Einarsson,
Portsmouth ekki í Evrópukeppni ef liðið vinnur bikarinn
Mynd: NordicPhotos
Portsmouth mun ekki fá að keppa í Evrópukeppni á næsta tímabili ef að liðið verður enskur bikarmeistari í vor.

Hermann Hreiðarsson og félagar eru komnir í undanúrslit í enska bikarsins og eiga þar með ennþá góða möguleika á Evrópusæti þar sem að önnur lið sem eru eftir í keppninni gætu náð í Evrópusæti í gegnum enska úrvalsdeildina.

Hins vegar er ljóst að félagið myndi ekki fá að taka þátt í Evrópukeppni það sem að það kemst ekki í gegnum leyfiskerfi UEFA.

Portsmouth fór í greiðslustöðvun á dögunum og hefur ekki sýnt UEFA bókhald sitt sem að er krafa fyrir félög í Evrópukeppni.

Portsmouth varð enskur bikarmeistari árið 2008 og þá fór liðið í Evrópukeppni þar sem að það mætti meðal annars Wolfsburg og AC Milan.
Nýjustu fréttirnar