Heimild: Sky
Rafa Benitez, stjóri Liverpool, hefur ekki trú á að Steven Gerrard fyrirliði liðsins sé sekur um að hafa sýnt Andre Marriner dómara ,,V-merki" í tapi liðsins gegn Wigan í fyrrakvöld.
Gerrard fékk að líta gula spjaldið á 81.mínútu og í kjölfarið virtist hann lyfta upp tveimur puttum og gera ,,V-merki" en það þykir vera niðrandi á Englandi.
Í fyrstu var talið að Gerrard gæti fengið refsingu frá enska knattspyrnusambandinu fyrir athæfið en nú lítur út fyrir að svo verði ekki.
,,Stundum hreyfir þú fingurnar. Þetta var ekkert, við erum ekki að skoða þetta því að þetta var ekkert," sagði Benitez.
,,Allir leikmenn vita að þeir verða að haga sér á vellinum. Ég hafði meiri áhyggjur af heimskulegum brotum hjá leikmönnunum gegn Wigan."


