Harry Redknapp: Bale getur orðið einn besti vinstri bakvörðurinn
Harry Redknapp, stjóri Tottenham, hefur hrósað Gareth Bale í hástert og hann telur að leikmaðurinn ungi getur orðið einn besti vinstri bakvörður í heimi í nánustu framtíð.
Bale hefur leikið vel með Tottenham undanfarnar vikur en þessi tvítugi Walesverji getur líka leikið á kantinum og hann var í þeirri stöðu gegn Fulham um síðustu helgi.
,,Gareth hefur verið að leika stórkostlega, hann er í frábæru formi," sagði Redknapp.
,,Ég vildi ekki taka hann úr stöðu vinstri bakvarðar því að hann hefur verið framúrskarandi þar en við vorum ekki með nógu marga leikmenn gegn Fulham."
,,Hann getur spilað bæði sem vinstri bakvörður og kantmaður, hann getur staðið sig vel í báðum stöðum og hann var mjög ógnandi."
,,Hann er orðinn stærri og sterkari og fólk gleymir að hann er bara ungur strákur. Hann er orðinn sterkari bæði líkamlega og andlega og hann hefur frábæra hæfileika, mikinn hraða og frábæran vinstri fót, hann hefur allt."
,,Ég held að hann eigi eftir að verða einn besti vinstri bakvörðurinn eða örfætti leikmaðurinn í boltanum."