Íslenski netrúnturinn: Bréf frá Sigga, tvíburar og viðtöl
Þá er komið að ,,Íslenska netrúntinum." Þar rennir Fótbolti.net yfir síður íslensku félaganna, stuðningsmannasíður og aðrar síður sem tengjast fótbolta og skoðar athyglisvert efni. Um er að ræða fastan lið á Fótbolta.net og lesendur mega endilega senda ábendingar um efni á fotbolti@fotbolti.net.
Andrew Mwesigwa skrifar Eyjamönnum bréf:
Andrew Mwesigwa, sem hefur leikið með ÍBV undanfarin fjögur ár, hefur samið við kínverska félagið Chongqing Lifan FC. Andy, eða Siggi eins og hann er kallaður í Eyjum, hefur skrifað langt bréf sem er birt á heimasíðu ÍBV. Þar þakkar hann Eyjamönnum fyrir tímann hjá ÍBV og segist hafa kunnað vel við sig á Íslandi.
Sjá fréttina í heild: Kveðja frá Andrew Mwesigwa
Tvíburar í fótboltanum:
Á sammarinn.com er skemmtileg grein þar sem farið er yfir tvíburapör sem hafa gert það gott í fótboltanum. Arnar og Bjarki Gunnlaugsson koma þar fyrir sem og erlend tvíburapör.
Sjá fréttina í heild: Sex í skemmtun - Tvíburar
Stuðningsmenn andstæðinganna svara spurningum:
Selfoss.org, stuðningsmannasíða Selfyssinga, er með skemmtilegan lið í gangi en þar taka þeir viðtal við einn stuðningsmann frá hverju liði í Pepsi-deildinni. Nú þegar hafa birst greinar þar sem stuðningsmenn frá Grindavík, Stjörnunni og FH svara nokkrum spurningum.
Sjá fréttina í heild: Sjónarmið andstæðinganna
Leifur í viðtali eftir úrslitaleikinn:
Á vikingur.net er Leifur Garðarsson þjálfari Víkings R. í viðtali. Í viðtalinu fer Leifur yfir úrslitaleik Reykjavíkurmótsins, umdeilt mark KR, glæsimörk Halldórs Smára Sigurðssonar og næstu verkefni liðsins.
Sjá fréttina í heild: Leifur: Stoltur af framlagi míns liðs
Tómas Ingi ánægður með leikinn gegn Blikum:
Tómas Ingi Tómasson, þjálfari HK, er í viðtali á heimasíðu liðsins. Þar fer hann yfir leikinn gegn Breiðablik í gær þar sem að HK tapaði 3-2. Tómas Ingi var þó ánægður með spilamennsku sinna manna og segir að þetta hafi verið besti leikur liðsins síðan að hann tók við síðastliðið haust.
Sjá fréttina í heild: Við þurfum 22 svona leiki í sumar