Rafa Benitez svarar eiganda Wigan
Rafael Benitez segir að Dave Whelan, formaður Wigan, eigi að einbeita sér að sínu eigin félagi frekar en að hafa áhyggjur af því sem er að gerast hjá Liverpool.
Whelan gagnrýndi ástandið hjá Liverpool eftir að Wigan sigraði 1-0 í leik liðanna í fyrrakvöld.
,,Liverpool er í rugli. Eigendurnir eru frá Bandaríkjunum og ég held að þeir finni ekki fyrir því sem stuðningsmennirnir eru að finna fyrir," sagði Whelan.
,,Ég hef mikla samúð með stuðningsmönnum Liverpool því að þeir eru frábærir. Ég er mjög leiður fyrir þeirra hönd."
,,Við fórum á Anfield fyrr á leiktíðinni og það var ekki gott andrúmsloft og ekkert hjarta þar. Stuðningsmennirnir finna fyrir því og leikmennirnir eru byrjaðir að finna fyrir því líka."
Benitez var ekki ánægður með ummæli Whelan og hann hefur sagt formanninum að einbeita sér að sínu eigin félagi.
,,Ég vil ekki tala um Wigan. Hann (Whelan) ætti að tala um sitt eigið félag," sagði Benitez í dag.