Heimild: Heimasíða ÍA
Þrír ungir leikmenn skrifuðu undir samninga við félagið á dögunum en allir samningarnir eru til ársins 2012.
Leikmennirnir sem um ræðir eru Andri Adolphsson, Einar Logi Einarsson og Óli Valur Valdimarsson.
Andri er 17 ára gamall kantmaður en hann lék ellefu leiki með Skagamönnum í fyrra.
Óli Valur er tveimur árum eldri en hann er einnig kantmaður. Á síðasta tímabili lék hann fimmtán leiki með Skagamönnum og skoraði meðal annars sigurmark á lokamínútunum gegn KA.
Einar Logi er miðjumaður á nítjánda aldursári en hann er bróðir Heimis Einarssonar fyrirliða ÍA.
