Heimild:  
mið 10.mar 2010 18:38 Magnús Már Einarsson,
Óvíst hvort að Santi Cazorla verði með Spánverjum á HM
Mynd: NordicPhotos
Óvíst er hvort að Santi Cazorla, kantmaður Villareal, geti leikið með spænska landsliðinu á HM í sumar.

Þessi 25 ára gamli leikmaður fór í aðgerð í síðasta mánuði vegna kviðslits en batinn er hægur.

,,Ég veit ekki hvort að ég næ að snúa aftur á þessu tímabili. Í augnablikinu hef ég miklar efasemdir og tilfinningin er neikvæð," sagði Cazorla sem var í sigurliði Spánverja á EM 2008.

,,Það er ómögulegt að vita hvaða dag ég get snúið aftur og það er það versta."

,,Heimsmeistaramótið er fjarlægur draumur fyrir mig því að ég þarf að spila og það er vandamálið."

Nýjustu fréttirnar