Heimild:  
mið 10.mar 2010 14:02 Magnús Már Einarsson,
Steven Gerrard sleppur með refsingu
Mynd: NordicPhotos
Enska knattspyrnusambandið hefur staðfest að Steven Gerrard mun ekki fá refsingu fyrir að sýna Andre Marriner dómara ,,V-merki" í tapi liðsins gegn Wigan í fyrrakvöld.

Gerrard fékk að líta gula spjaldið á 81.mínútu og í kjölfarið virtist hann lyfta upp tveimur puttum og gera ,,V-merki" en það þykir vera niðrandi á Englandi.

Rafa Benitez, stjóri Liverpool, kom Gerrard til varnar í dag og nú er ljóst að leikmaðurinn mun ekki fá refsingu frá enska knattspyrnusambandinu.

Talið er að Marriner hafi séð atvikið í leiknum en ekki talið það verðskulda refsingu og því getur enska knattspyrnusambandið ekkert aðhafst.
Nýjustu fréttirnar