Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 10. mars 2010 15:06
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sporting Life 
Van Gaal: Ekki öruggt að Ribery verði áfram hjá Bayern
Louis van Gaal, þjálfari FC Bayern, segir að ekki sé öruggt að Franck Ribery verði áfram hjá liðinu þrátt fyrir að það hafi tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi.

Ribery lék frá byrjun gegn Fiorentina í gær en þessi franski snillingur náði að hrista af sér meiðsli fyrir leikinn.

Ribery er samningsbudinn Bayern til ársins 2011 en þýska félagið mun væntanlega selja leikmanninn í sumar ef að hann skrifar ekki undir nýjan samning.

,,Ef að ég horfi á það sem að hann gerði til að vera klár í slaginn fyrir leikinn gegn Fiorentina þá held ég að hann verði áfram," sagði Van Gaal.

,,Síðan ef ég les dagblöðin þá held ég að hann verði ekki áfram. Þetta er erfitt. Ef að hann vill fara þá ættum við að selja hann núna því að það gefur pening og er gott fyrir Bayern."
Slapp