Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 10. mars 2010 16:17
Magnús Már Einarsson
Heimild: FourFourTwo 
Ronaldinho stefnir á að spila á HM í ár og árið 2014
Ronaldinho, leikmaður AC Milan, hefur trú á að hann nái að vinna sér sæti í brasilíska landsliðshópnum fyrir HM í sumar.

Þessi 29 ára gamli leikmaður hefur ekki verið í náðinni hjá Dunga landsliðsþjálfara Brasilíu en Ronaldinho ætlar sér að fara á HM í sumar.

,,Ég er alltaf mjög jákvæður. Ef að ég spila mjög vel hjá Milan...þá hef ég trú á að ég muni taka þátt (á HM)," sagði Ronaldinho.

,,Ekki einungis á þessu heimsmeistaramóti heldur líka árið 2014. Það er draumur minn."

,,Ég vonast til að leika áfram með stóru liði þangað til þá og ég vonast til að taka þátt í báðum þessum heimsmeistaramótum."

Slapp
banner
banner
banner