Bent og félagar í Sunderland rústuðu Stoke í Call of Duty
Darren Bent, framherji Sunderland, skoraði þrennu gegn Bolton í gær en hann hefur leikið frábærlega á tímabilinu og skorað samtals 18 mörk í ensku úrvalsdeildinni.
Þegar að hann er ekki á æfingum eða keppa þá eyðir Bent hins vegar miklum tíma í tölvuleiknum Call of Duty en hann greindi frá þessu í nýlegu viðtali í fótboltatímaritinu FourFourTwo.
,,Ég fer heim og spila Call of Duty á box flesta daga. Margir félagar mínir spila líka og við erum allir með míkrafóna og tölum saman. Nokkrir leikmenn hjá Sunderland eru með, Kieran Richardson, Fraizer Campbell, Daryl Murphy og Kenwyne Jones," sagði Bent.
,,Það er mikil keppni í gangi. Kieran er líklega bestur af okkur. Við spiluðum sem lið nýlega gegn leikmönnum Stoke City en Danny Collins kom því í kring. Við gjörsamlega slátruðum þeim."