Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 10. mars 2010 21:33
Magnús Már Einarsson
Meistaradeildin: Rooney með tvö í öruggum sigri Man Utd
Manchester United 4 - 0 AC Milan (7-2 samanlagt)
1-0 Wayne Rooney ('13)
2-0 Wayne Rooney ('46)
3-0 Ji-Sung Park ('59)
4-0 Darren Fletcher ('87)

Manchester United tryggði sér í kvöld sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar en liðið sigraði AC Milan örugglega 4-0 á Old Trafford og samanlagt 7-2.

Wayne Rooney skoraði tvívegis í leiknum og er þar með kominn með 30 mörk í öllum keppnum á þessu tímabili.

Rooney kom United yfir á þrettándu mínútu í kvöld en hann skallaði þá boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Gary Neville.

Rooney bætti öðru marki sínu við strax á fyrstu mínútunni í síðari hálfleik. Nani átti þá sendingu af vinstri kantinum inn á Rooney sem skoraði framhjá Christian Abbiati sem kom út úr markinu.

Ef að AC Milan átti einhverja smá von þá dó hún algjörlega á 59.mínútu þegar að Ji-Sung Park skoraði með fínu skoti í fjærhornið.

Skömmu eftir þriðja markið kom David Beckham inn á sem varamaður hjá AC Milan og Wayne Rooney fór einnig af velli hjá United. Beckham átti eina ágætis tilraun á sínum gamla heimavelli en hann átti þá þrumuskot sem Edwin van der Sar varði í horn.

Darren Fletcher innsiglaði síðan frábæran sigur Manchester United á 87.mínútu þegar að hann skallaði boltann í netið eftir fyrirgjöf frá varamanninum Rafael og lokatölur 4-0 á Old Trafford.
Slapp
banner
banner
banner