Burnley 1 - 1 Stoke City
0-1 Tuncay ('24)
1-1 D. Nugent ('52)
0-1 Tuncay ('24)
1-1 D. Nugent ('52)
Burnley og Stoke City gerðu 1-1 jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Það kom lítið á óvart að mark Stoke kom eftir langt innkast frá Rory Delap á 24.mínútu. Mamady Sidibe skallaði boltann áfram á Tuncay sem skallaði í netið af stuttu færi.
Burnley náði að jafna í upphafi síðari hálfleiks en David Nugent skallaði þá fyrirgjöf Martin Paterson í netið.
Ekki voru fleiri mörk skoruð í leiknum og Burnley er því ennþá í fallsæti en liðið hefur einungis unnið einn af níu leikjum síðan að Brian Laws tók við af Owen Coyle í janúar.
Jóhannes Karl Guðjónsson hefur ekki verið í náðinni hjá Laws og hann var ekki í leikmannahópnu í kvöld.


