Championship: Robbie Savage fór í markið í sigri Reading
Reading 4 - 1 Derby County
1-0 S. Long ('8)
1-1 G. Sunu ('21)
2-1 J. Kebe ('34)
3-1 R. Bertrand ('69)
4-1 S. Church ('84)
Reading sigraði Derby örugglega 4-1 í ensku Championship deildinni í kvöld.
Derby lenti í vandræðum rétt fyrir leikhlé í kvöld þegar að markvörðurinn Saul Deeney fékk að líta rauða spjaldið. Deeney hafði komið inn á sem varamaður fyrir Stephen Bywater fyrr í leiknum og því hafði Derby ekki fleiri markverði til taks.
Miðjumaðurinn reyndi Robbie Savage stökk því á milli stanganna en hann náði ekki að hjálpa Derby að snúa taflinu við því að hann fékk tvö mörk á sig í síðari hálfleiknum.
Gylfi Þór Sigurðsson og Ívar Ingimarsson léku allan leikinn með Reading í kvöld og Brynjar
Björn Gunnarsson kom inn á sem varamaður á 75.mínútu.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson var aftur á móti ekki í leikmannahópi Reading sem er eftir sigurinn í sautjánda sæti í Championship deildinni.