Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 11. mars 2010 15:41
Magnús Már Einarsson
KV fær fimm leikmenn (Staðfest)
Ingvar Rafn Stefánsson og Björn Berg Gunnarsson stjórnarmaður hjá KV.
Ingvar Rafn Stefánsson og Björn Berg Gunnarsson stjórnarmaður hjá KV.
Mynd: KV
Knattspyrnufélag Vesturbæjar, sem leikur í 2. deild í sumar, hefur fengið mikinn liðsstyrk fyrir komandi átök, en fimm leikmenn gengu á dögunum til liðs við félagið.

Halldór Svavar Sigurðsson, fæddur 1982 kemur frá Hömrunum/Vinum en þessi mikli markaskorari lék áður með Magna, Snerti og Eflingu.

Ingvar Rafn Stefánsson, fæddur 1987 skiptir úr Leikni Fáskrúðsfirði en lék áður með Hvöt og Fjarðabyggð.

Jason Már Bergsteinsson, fæddur 1988 kemur aftur í Vesturbænum úr Gróttu þar sem hann lék 16 leiki undanfarin tvö ár í 2. deild

Magnús Helgason, fæddur 1990 gengur til liðs við KV frá Víkingum og snýr á fornar slóðir.

Björn Ívar Björnsson, fæddur 1988 gengur svo formlega til liðs við KV, en hann hefur í láni frá KR síðastliðin 2 tímabil og skoraði meðal annars 11 mörk í 11 leikjum fyrir Vesturbæjarliðið sumarið 2009.

,,KV fagnar komu þessara öflugu leikmanna og telur sérstaklega gleðilegt að fá þá Magnús og Jason aftur heim í Vesturbæinn," segir í fréttatilkynningu frá KV.
Slapp
banner
banner