Heimild:  
fim 11.mar 2010 16:04 Sigurður Reynir Karlsson ,
Rooney ekki að eltast við markamet
Rooney hefur verið frábær í vetur.
Mynd: NordicPhotos
Wayne Rooney, framherji Manchester United segist ekki vera að hugsa um markamet Cristiano Ronaldo sem skoraði 42 mörk tímabilið 2007-2008.

,,Ég er mjög ánægður með hve mikið af mörkum ég hef skorað en ég er samt ekki að leitast eftir því að bæta met," sagði Rooney sem hefur verið sjóðheitur í vetur og skoraði tvö mörk gegn AC Milan í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi.

,,Þetta voru frábær úrslit og við erum allir mjög ánægðir með að vera komnir áfram."

,,Nú er bara að bíða eftir drættinum. Það eru engir óskamótherjar þar enda bara sterk lið eftir í keppninni."

Rooney hefur skorað 30 mörk á tímabilinu og haldi hann áfram á þessari braut á hann góða möguleika á að bæta met Ronaldo.
Nýjustu fréttirnar