Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 11. mars 2010 15:01
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sporting Life 
Wenger: Kraftaverk ef að Fabregas nær að spila gegn Hull
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að það þurfi kraftaverk ef að Cesc Fabregas á að spila gegn Hull á laugardag.

Fabregas meiddist aftan í læri gegn Burnley um síðustu helgi og var ekki með Arsenal í sigrinum á Porto í fyrrakvöld.

,,Möguleikar hans eru 0,5% og það þýðir að hann muni ekki spila nema að það gerist kraftaverk. Eins og staðan er í augnablikinu þá verður Cesc ekki með á laugardag," sagði Wenger.

,,Við höfum smá efasemdir með (Tomas) Rosicky en við skoðum meiðsli hans á morgun. Enginn annar er kominn til baka en við missum (Alex) Song sem er í leikbanni."

William Gallas og Bacary Sagna eru einnig að glíma við meiðsli en Wenger vonar að Sol Campbell verði klár í slaginn á laugardaginn.
Slapp
banner