Heimild: Sporting Life
Baboucar Cisse, lögfræðingur El Hadji Diouf leikmanns Blackburn, segir ekkert til í ásökunum þess efnis að leikmaðurinn hafi ráðist á konu í spilavíti í Senegal í júní á síðasta ári.
Diouf hefur verið ákærður og gæti fengið allt að tveggja ára fangelsi ef að hann verður fundinn sekur.
Diouf fór til Senegal á dögunum út af þessu máli en hann er núna kominn aftur til Englands.
Cisse sendi frá sér yfirlýsingu í dag ar sem að hann segir að ásakanir á hendur Diouf séu rangar en leikmaðurinn gæti þrátt fyrir það þurft að mæta fyrir rétt í Senegal á næstu vikum.



