Heimild:  
fös 12.mar 2010 07:25 Hörður Snævar Jónsson,
Redknapp: Manchester City er liðið til að varast
Mynd: NordicPhotos
Harry Redknapp stjóri Tottenham segir að Manchester City sé liðið sem Spurs þarf að vinna til að ná fjórða sætinu.

Tottenham er í barátunni um þetta síðasta sæti sem gefur rétt á sæti í Meistaradeildinni ásamt, City, Liverpool og Aston Vila.

,,Við erum þarna og eigum frábæran möguleika. Manchester City er liðið til að varast," sagði Redknapp.

,,Gatið er að minnka á milli allra liða. Við erum að reyna að breyta þessu en það er ekki auðvelt. Það eru samt ekki milljón mílur á milli."

,,Ég hélt að það verði ekki mikið bil á milli liðanna í lok tímabilsins."

,,Arsenal getur unnið deildina, þeir eru gott lið og stjórinn hefur gert vel."

Nýjustu fréttirnar