,,Hér sáu menn tvö lið sem voru að takast á og það var barátta út um allan völl," sagði Baldur Ingimar Aðalsteinsson leikmaður Vals eftir 1-1 jafntefli við Fram í Lengjubikarnum í kvöld.
,,Ég var ánægður með baráttuna í okkar liði. Þetta hefur vantað hjá okkur, að mæta þessum Frömurum á þeirra leveli, þetta var hörkuleikur."
,,Gæðin í leiknum voru kannski ekki einstök en vinnusemi og barátta til fyrirmyndar."
Rætt var við Baldur í sjónvarpsviðtali sem má sjá hér að ofan.

























