Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 11. mars 2010 22:48
Hafliði Breiðfjörð
Lengjubikarinn: Auðveldur sigur Víkings á Fjölni
Pétur Svansson skoraði annað mark Víkings með þrumuskoti.
Pétur Svansson skoraði annað mark Víkings með þrumuskoti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur 3-0 Fjölnir:
1-0 Helgi Sigurðsson ('5)
2-0 Pétur Svansson ('31)
3-0 Sjálfsmark ('35)

Víkingar unnu nokkuð auðveldan sigur á Fjölni í Lengjubikarnum í kvöld en leiknum lauk með 3-0 sigri þeirra og öll mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik.

Helgi Sigurðsson kom Víkingum yfir strax eftir fimm mínútna leik er hann stýrði boltanum í netið eftir klafs í teignum.

Pétur Svansson bætti öðru marki við þegar hálftími var liðinn af leiknum en markið skoraði hann með þrumuskoti á fjærstöng úr teignum.

Þriðja mark Víkings kom svo fjórum mínútum en það var sjálfsmark Fjölnismanns.

Lítið gerðist í síðari hálfleiknum og leikurinn hefði allt eins geta klárast í hálfleik. Bæði lið nýttu allar skiptingar sínar og skiptu meira að segja bæði um markmenn í síðari hálfleik.

Fjölnismenn fengu fín færi í leiknum sem þeim tókst ekki að nýta og því fór sem fór að þessu sinni. Liðið er mikið breytt frá síðustu leiktíð og uppistaðan ungir og uppaldir leikmenn. Víkingar eru með mjög öflugt lið sem mun eflaust gera stóra hluti á komandi sumri.
Slapp
banner