Heimild:  
fös 12.mar 2010 07:00 Magnús Már Einarsson,
Didier Drogba knattspyrnumaður ársins í Afríku
Mynd: NordicPhotos
Didier Drogba, framherji Chelsea, hefur verið valinn knattspyrnumaður ársins í Afríku en þetta var tilkynnt á verðlaunaafhendingu í Ghana í gær.

Drogba, sem fagnaði 32 ára afmæli sínu í gær, var að vinna þessi verðlaun í annað skiptið á ferlinum því að hann var einnig knattspyrnumaður ársins í Afríku árið 2006.

Drogba skoraði fimm mörk fyrir Fílabeinsströndina í undankeppni HM á síðasta ári og hjálpaði Chelsea að verða bikarmeistari.

Michael Essien og Samuel Eto´o komu í næstu sætu á eftir Drogba í valinu en enginn af leikmönnunum mætti á verðlaunaafhendinguna í gær.

Á verðlaunaafhendingunni í gær fékk Alsír einnig verðlaun fyrir að vera lið ársins í Afríku.
Nýjustu fréttirnar