Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 12. mars 2010 08:44
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Blikar.is 
Breiðablik með netsöfnun fyrir Guðmundi Péturssyni
Guðmundur Pétursson.
Guðmundur Pétursson.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Eins og við höfum áður sagt frá gekk Guðmundur Pétursson í raðir Breiðabliks í byrjun vikunnar frá KR. Guðmundur hafði verið samningsbundinn KR og því þurfti Breiðablik að kaupa hann.

Félagið hefur nú sett af stað söfnun á vefsíðunni Blikar.is þar sem peningum er safnað upp í kaupverð Guðmundar.

,,Þó búið sé að semja við Guðmund og ganga frá málinu þá er öruggt að þeir peningar hafa ekki verið tíndir upp af götunni," segir á Blikar.is.

,,Og nú er lag fyrir alla Blika sem vilja sýna hug sinn til þessa máls að láta gott af sér leiða og sýna samstöðu í verki því nú hafa nokkrir vaskir menn tekið af skarið og stofnað reikning í Landsbanka Íslands í þessum tilgangi ásamt því að þeir leggja fram fé í söfnunina," heldur þar áfram.

Stuðningsmenn félagsins eru hvattir til að leggja sem samsvarar tveimur bíómiðum inn á reikning söfnunarinnar en framlagið megi þó auðvitað vera hærra.

Fyrir áhugasama er reikningsnúmer söfnunarinnar er 0135-15-380497 - kt.451093-2319.
Slapp
banner