Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 12. mars 2010 09:15
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Sporting Life 
Enn ganga skotin milli Benítez og Allardyce
Það virðist ekki ætla að gróa um heilt milli Rafael Benítez knattspyrnustjóra Liverpool og Sam Allardyce knattspyrnustjóra Blackburn Rovers en sá síðarnefndi hafði móðgast yfir ummælum Spánverjans eftir leik liðanna fyrr í vetur.

Þá hafði Benítez gert grín að leikstíl Blackburn er liðin mættust í febrúar og Allardyce minntist á þetta í spjalli við fjölmiðla í gær og sakaði Benítez um að gera þetta að persónulegu stríði þeirra á milli.

,,Þetta var gott yfirklór hjá Rafa því hann veit hversu lélegt liðið hans var og það endurtók sig gegn Wigan á mánudagskvöldið," sagði Allardyce.

,,Hann hefur gert þetta persónulegt eins og gagnvart mörgum í mörg ár núna. Þess vegna líkar okkur ekki við hann og það er líklega gagnkvæmt. Ég er ekki í persónulegu stríði við hann, ég beini hlutunum að honum og pirra hann, já, en það er allt hluti af leiknum."

,,Deilurnar milli mín og Rafa munu líklega halda áfram þar til annar okkar hættir sem stjóri í úrvalsdeildinni."


Eftir tap Liverpool gegn Lille í Evrópudeildinni í gærkvöld var Benítez svo spurður út í ummæli Allardyce.

,,Hver?" svaraði Benítez í gríni í fyrstu. ,,Ég tjái mig ekki, ekkert umtal fyrir hann."
Slapp
banner
banner
banner