Heimild: BBC
Þá er komið að helsta slúðrinu úr enska boltanum en pakkinn er í boði Powerade.
Manchester City er komið í baráttuna um nígeríska miðjumanninn Ramon Azeez. Manchester United hefur líka áhuga á þessum unga leikmanni. (Daily Mail)
Real Madrid ætlar að reyna að kaupa Wayne Rooney frá Manchester United en þetta segir spænska íþróttablaðið Sport. (Imscouting)
Igor Akinfeev, markvörður CSKA Moskva, mun fá nýjan samning frá félaginu til að hann fari ekki frítt en þessi knái leikmaður er undir smásjá Manchester United. (Daily Mail)
Danny, miðjumaður Zenit St Pétursborg, vill fara til Chelsea á 25 milljónir punda en hann er búinn að jafna sig af hnémeiðslum sem settu feril hans í hættu. (Daily Mail)
Stoke vill fá Jermaine Pennant kantmann Real Zaragoza aftur til Englands. (Daily Mirror)
Nigel Clough, stjóri Derby, ætlar að fá David Martin markvörð Liverpool á láni þar sem að tveir markmenn liðsins geta ekki leikið um helgina. (Daily Mirror)
Wayne Rooney, framherji Manchester United, hefur þurft að minnka æfingaálag sitt á tímabilinu til að ofkeyra sig ekki. Rooney hefur byrjað alls 43 leiki á tímabilinu með Manchester United og enska landsliðinu. (The Sun)
David Beckham verður boðið að vera andlit herferðar gegn Glazer fjölskyldunni sem á Manchester United. Eftir leik AC Milan og Manchester United í fyrradag setti Beckham upp grænan og gulllitaðan trefil sem er tákn herferðarinnar. (Ýmsir miðlar)
Stuðningsmenn Manchester United vilja einnig fá Peter Schmeichel og Eric Cantona til að hjálpa til í herferðinni. (Daily Mail)
Fabio Capbello, landsliðsþjálfari Englendinga, er að íhuga að velja Gary Neville í landsliðshópinn þar sem að Glen Johnson og Wes Brown hafa báðir verið að glíma við meiðsli. (Daily Mail)
Þrátt fyrir að Liverpool hafi gengið illa þá er Rafael Benitez stjóri liðsins ennþá á óskalista Real Madrid en spænsku risarnir munu reka Manuel Pellegrini í sumar. (The Sun)
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, vill ekki heyra frá Real Madrid og hefur sagt við spænska félagið: ,,Látið mig í friði." (Daily Mirror)
Leikmenn Portsmouth eru tilbúnir að borga sjálfur laun fyrir átta starfsmenn á æfingasvæði félagsins út tímabilið en alls misstu 85 einstaklingar vinnuna hjá Portsmouth í vikunni. (Ýmsir miðlar)
Steve Bruce, stjóri Sunderland, hefur fengið þau skilaboð að starf hans sé öruggt, jafnvel þó að liðið falli úr ensku úrvalsdeildinni. (Daily Star)
Wayne Rooney, framherji Manchester United, segist að lítið hár á höfði sínu sé ástæðan fyrir góðu gengi fyrir framan markið. ,,Boltinn kemur af skallablettinum og það hjálpar mér að skora," grínaðist Rooney en fyrra markið gegn AC Milan var það sjöunda í röð með skalla. (Daily Mail)


