Heimild: Sky
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur sagt forráðamönnum Real Madrid að hann hafi engan áhuga á að taka við spænska félaginu.
Mjög heitt er undir Manuel Pellegrini þjálfara Real Madrid eftir að liðið datt úr Meistaradeildinni í vikunni en félagið eyddi meira en 200 milljónum punda í leikmannakaup í fyrra.
Real Madrid skoðaði þann möguleika að fá Wenger áður en Pellegrini var ráðinn í fyrra en orðrómur er um að spænsku risarnir muni gera aðra tilraun til að fá Frakkann til að taka við. Wenger hefur hins vegar ekki áhuga á því.
,,Látið mig í friði. Ég ætla alltaf að klára samning minn sem er til ársins 2011. Það er ekki möguleiki á að ég brjóti þann samning," sagði Wenger.
,,Þetta kemur á versta augnabliki sem hægt er fyrir mig. Í augnablikinu er ég að einbeita mér að leik gegn Hull City, það er minni glamúr í kringum þá en Real Madrid en þeir eru mikilvægari í lífi mínu núna."
,,Það sést að það að eyða 240 milljónum punda kaupir ekki endilega sigur í Meistaradeildinni og þetta sýnir að það er ekki hægt að bóka velgengni í Evrópu. Ef að þú getur eytt svona fjárhæðum á hverju ári þá kemstu þangað á endanum en þetta er erfitt fyrir þá í augnablikinu."
,,Á síðustu fimm árum höfum við farið í úrslit, unanúrslit og tvisvar í 8-liða úrslit. Á Englandi er það ekki kallað afrek lengur því að við erum vanir þessu en það er ekki auðvelt að ná þessum stöðugleika."





