Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   lau 13. mars 2010 09:11
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Sky 
Ferguson vill sjá Hodgson taka við enska landsliðinu
Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United er á því að Roy Hodgson stjóri Fulham sé tilvalinn eftirmaður Fabio Capelo hjá enska landsliðinu.

Ferguson og Hodgson eigast við í ensku úrvalsdeildinni á morgun.

,,Roy Hodgson er með mikla reynslu, reynslu sem þú þarft með landslið. Hann væri frábær kostur," sagði Ferguson.

,,Ég er viss um að ef Fabo gerir vel á HM þá vill hann halda áfram með England."

,,Af hverju ætti hann að vilja hætta? Þetta er erfitt verkefni af því væntingarnar eru miklar og hann virkar á mig sú týpa sem höndlar það."

Slapp
banner