Heimild: Sky
Luka Modric, miðvallarleikmaður Tottenham, segist frekar vilja ná fjórða sætinu í ensku úrvalsdeildinni heldur en að vinna FA-bikarinn á leiktíðinni.
Tottenham er í mikilli baráttu um fjórða sætið í ensku úrvalsdeildinni, sem gefur þáttökurétt í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Þar etja Tottenham kappi við Manchester City, Liverpool og Aston Villa.
Þá er Tottenham enn í FA-bikarnum, en liðið á eftir að leika síðari leikinn í viðureigninni gegn Fulham í átta liða úrslitum þar sem fyrri leiknum luktaði með jafntefli. Ef Tottenham vinnur leikinn, þá mætir liðið Portsmouth í undanúrslitum.
,,Ég vil ná því báðu!," sagði Modric og hló. ,,En mig persónulega langar meira til að spila í Meistaradeildinni en að vinna FA-bikarinn."
,,FA-bikarinn er stór keppni, en af því að ég hef aldrei spilað í Meistaradeildinni þá vil ég lenda í fjórða sætinu."




