Heimild: BBC
Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri Chelsea, hefur engar áhyggjur af því að Joe Cole leikmaður félagsins sé á förum en sá enski hefur verið orðaður við Englandsmeistara Manchester United.
,,Samningaviðræður eru ekki neitt vandamál, en ég er 100% viss um að hann verði áfram hérna," sagði Ancelotti.
,,Hugarfar hans er gríðarlega gott. Jafnvel þegar hann kemur inn sem varamaður þá missir hann ekki sjálfstraustið, hann missir ekki hugarfarið, hann leggur hart að sér."
,,Hann er mikilvægur leikmaður fyrir okkur. Hann hjálpar liðsfélögum sínum og gæti spilað fleiri mikilvæga leiki á þessari leiktíð."



