Kristján Guðmundsson og lærisveinar hans í HB sigruðu Víking 2-1 í leiknum ,,meistarar meistaranna" í Færeyjum í dag.
Fróði Benjaminsen, fyrrum leikmaður Fram, og Rógvi Poulsen skoruðu fyrir HB.
Finnur Justinusen jafnaði fyrir Viking eftir mistök hjá markverði HB.
Símun Samuelsen og Þórður Steinar Hreiðarsson spiluðu báðir allan leikinn með HB og stóðu sig vel.
Þórður átti meðal annars skalla í slána og niður eftir hornspyrnu en leikmenn Víkings náðu síðan að hreinsa.



