Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   sun 14. mars 2010 19:29
Magnús Már Einarsson
Noregur: Veigar Páll lagði upp mark í sigri Stabæk
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Veigar Páll Gunnarsson lagði upp annað mark Stabæk þegar að liðið lagði Odd Grenland 3-2 í norska boltanum í dag. Veigar Páll sendi þá fyrir á Johan Andersson sem að stangaði boltann í netið og kom Stabæk í 2-1.

Veigar lék fyrstu 63 mínúturnar fyrir Stabæk en Pálmi Rafn Pálmason kom síðan inn á fyrir hann. Bjarni Ólafur Eiríksson lék allan leikinn með Stabæk og Árni Gautur Arason lék allan leikinn með Odd Grenland.

Stefán Logi Magnússon lék í marki Lilleström og Björn Bergmann Sigurðarson kom inn á sem varamaður þegar að liðið tapaði 3-0 gegn Álasund.

Kristján Örn Sigurðsson lék einnig allan leikinn með Hönefoss sem tapaði 2-0 gegn Tromsö.

Úrslit dagsins:
Start 2 - 0 Sandefjord
Strømsgodset 2 - 0 Kongsvinger 2-0
Tromsø 2 - 0 Hønefoss BK
Odd Grenland 2 - 3 Stabæk
Álasund 3 - 0 Lillestrøm
Slapp
banner
banner