Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   sun 14. mars 2010 20:50
Hafliði Breiðfjörð
Lengjubikarinn: KR vann Keflavík í fimm marka leik
Óskar Örn Hauksson skoraði sigurmark KR úr vítaspyrnu.
Óskar Örn Hauksson skoraði sigurmark KR úr vítaspyrnu.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Guðjón Árni skoraði frábært mark.
Guðjón Árni skoraði frábært mark.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
KR 3-2 Keflavík:
1-0 Óskar Örn Hauksson (’21)
1-1 Hörður Sveinsson (’44)
1-2 Guðjón Árni Antoníusson (’50)
2-2 Gunnar Örn Jónsson (’55)
3-2 Óskar Örn Hauksson (’66, víti)

KR vann stórleikinn gegn Keflavík í Lengjubikar karla í kvöld en fimm mörk voru skoruð og sigurmarkið kom úr vítaspyrnu eftir rúmlega klukkutíma leik.

Nokkuð miklar breytingar voru á liði KR fá úrslitaleik Reykjavíkurmótsins en athygli vakti að margir af ungur strákunum sem höfðu séð fram á tækifæri sín fækka eftir leikmannakaup vikunnar voru í byrjunarliði.

Það eru leikmenn eins og Dofri Snorrason, Gunnar Kristjánsson og Ingólfur Sigurðsson og þá var Guðmundur Reynir Gunnarsson í bakvarðarstöðunni í fjarveru Jordao Diogo sem er meiddur. Guðjón Baldvinsson er ekki kominn með leikheimild og þá voru þeir Björgólfur Takefusa, Kjartan Henry Finnbogason, Mark Rutgers og Baldur Sigurðsson ekki í hópnum hjá KR.

Hjá Keflavík vantar enn sterka leikmenn eins og Jóhann Birni Guðmundsson, Guðmund Steinarsson, Hauk Inga Guðnason og Magnús Sverri Þorsteinsson en þeir tefldu samt fram sterku liði.

Óskar Örn Hauksson kom KR yfir eftir 20 mínútna leik er hann skallaði í bláhornið eftir fyrirgjöf Viktors Bjarka Arnarsonar.

Keflvíkingar jöfnuðu metin undir lok fyrri hálfleiks. Grétar Sigfinnur Sigurðarson miðvörður KR og markvörðurinn Þórður Ingason náðu ekki saman um hvor ætti að vera með boltann og Hörður Sveinsson áttaði sig á óráðsíunni og skaust á milli þeirra, potaði í boltann og afgreiddi svo í netið.

Á 50. mínútu komust Keflvíkingar yfir. Guðjón Árni Antoníusson kom þá á ferðinni inn í vítateiginn og tók boltann á kassann áður en hann afgreiddi hann upp í samskeytin, frábært mark.

KR-ingar jöfnuðu svo metin fimm mínútum síðar með marki sem ar ekki síðra. Bjarni Guðjónsson sendi þá góðan bolta á Gunnar Örn Jónsson sem þrumaði boltanum upp í samskeytin og staðan orðin 2-2.

Á 66. mínútu var Brynjar Guðmundsson í Gunnari Kristjánssyni sem var að fara að skjóta boltanum einn gegn Ómari. Dómari leiksins taldi Brynjar hafa brotið á Gunnari og dæmdi vítaspyrnu og Brynjar fékk að líta rauða spjaldið. Keflvíkingar vildu hinsvegar meina að Gunnar hafi látið sig falla eftir að Brynjar hafi stolið af honum boltanum. Óskar Örn Hauksson tók spyrnuna og skoraði af öryggi.

Lokastaðan 3-2 fyrir KR þrátt fyrir að bæði lið hafi fengið fín færi til að skora fleiri mörk það sem eftir lifði leiks.

KR: Þórður Ingason, Dofri Snorrason, Skúli Jón Friðgeirsson, Grétar Sigfinnur Sigurðarson, Guðmundur Reynir Gunnarsson, Bjarni Guðjónsson, Viktor Bjarki Arnarson (Eggert Rafn Einarsson ’64), Óskar Örn Hauksson, Gunnar Örn Jónsson, Gunnar Kristjánsson, Ingólfur Sigurðsson.

Keflavík: Ómar Jóhannesson, Guðjón Árni Antoníusson, Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Haraldur Freyr Guðmundsson, Alen Sutej (Tómas Karl Kjartansson ’85), Brynjar Guðmundsson, Paul McShane, Magnús Þórir Matthíasson (Magnús Sverrir Þorsteinsson ’79), Sigurður Gunnar Sævarsson, Hörður Sveinsson, Hólmar Örn Rúnarsson.

Gul spjöld: Bjarni Guðjónsson, KR (’66), Willum Þór Þórsson, Keflavík (’68)
Rautt spjald: Brynjar Guðmundsson, Keflavík (’66)
Slapp
banner
banner