KR vann 3-2 sigur á Keflavík í stórleik helgarinnar í Lengjubikar karla en lokastaðan var 3-2. Grétar Sigfinnur Sigurðarson fyrirliði KR ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn.
,,Þetta var kærkominn sigur. Ég er mjög ánægður með þrjú stig en það er svo margt sem við máttum bæta í þessum leik, sérstaklega varnarleikinn," sagði Grétar í sjónvarpsviðtali við Fótbolta.net efti leikinn.
Grétar og Þórður Ingason markvörður KR gerðu sameiginlega mistök í öðru marki Keflavíkur og Hörður Sveinsson skynjaði óöryggi þeirra á milli, potaði í boltann og skoraði. En hvað var Grétar að hugsa?
,,Eitthvað annað en að koma boltanum í burtu," sagði Grétar. ,,Nei nei, ég ætlaði bara að láta hann taka hann en það var misskilningur. Auðvitað átti ég að vera löngu búinn að hreinsa þetta."





















