Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   sun 14. mars 2010 22:35
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Sporting Life 
Beckham missir af HM 2010 eftir að hafa slitið hásin
David Beckham verður lengi frá keppni eftir að hafa slitið hásin í leik AC Milan gegn Chievo í ítölsku Serie A deildinni í kvöld.

Beckham lenti í meiðslunum án þess að vera nærri nokkrum öðrum leikmanni á vellinum en hásin er talin hafa slitnað sem þýðir að hann verður í nokkra mánuði að jafna sig.

Því er nokkuð ljóst að hann verður ekki með Englendingum á Heimsmeistaramótinu í Suður Afríku í sumar.

,,Okkur líður hræðilega yfir meiðslum Beckham," sagði Leonardo þjálfari AC Milan eftir leikinn.

,,Hann er ekki eins og aðrir og leikurinn í dag sannar það. Ég get ekki notið sigursins vegna þess hversu alvarleg meiðslin eru. David vissi strax að hann hafði slitið hásin."

AC Milan 1-0 Chievo:
1-0 Clarence Seedorf ('90)
Slapp
banner