Heimild:  
þri 16.mar 2010 18:16 Magnús Már Einarsson,
Buffon pirraður á að vera orðaður við Manchester City
Mynd: NordicPhotos
Gianluigi Buffon, markvörður Juventus, er orðinn pirraður á því að vera stanslaust orðaður við Manchester City.

Undanfarna daga hafa borist fréttir af því að City ætli að bjóða 35 milljónir evra í Buffon eftir HM í sumar.

Þessi 32 ára gamli leikmaður er samningsbundinn Juventus til ársins 2013 og hann segist vera þreyttur á þessum sögusögnum.

,,Gigi (Buffon) er mjög pirraður því að það er ekkert til í þessum orðrómum," sagði Silvano Martina umboðsmaður Buffon í viðtali við Corriere dello Sport.
Nýjustu fréttirnar