Heimild:  
þri 16.mar 2010 18:01 Magnús Már Einarsson,
Marcelo Lippi: Balotelli ekki tilbúinn að spila á HM
Mynd: NordicPhotos
Marcelo Lippi, landsliðsþjálfari Ítala, segst vera aðdáandi Mario Balotelli framherja Inter en hann telur að leikmaðurinn sé ekki tilbúinn að spila á HM í sumar.

Þessi 19 ára gamli leikmaður hefur verið í ítalska U21 árs landsliðinu en hann hefur ekki átt fast sæti í byrjunarliði Inter og er meðal annars ekki í leikmannahópnum fyrir leikinn gegn Chelsea í kvöld.

,,Balotelli er strákur sem hefur mikla hæfileika," sagði Lippi.

,,Ég er viss um að þegar að hann verður búinn að þroskast sem leikmaður með hjálp Inter þá muni hann geta hjálpað landsliðinu."
Nýjustu fréttirnar