Heimild: Heimasíða Leiknis
Vinstri bakvörðurinn Steinarr Guðmundsson hefur ákveðið að leika áfram með Leikni í sumar.
Steinarr hefur verið algjör lykilmaður í Leiknisliðinu í mörg ár en íhugaði að leggja skó sína á hilluna eftir síðasta tímabil.
Hann æfði með Valsmönnum um tíma í vetur en þegar ljóst varð að hann myndi ekki leika með þeim kom ekkert annað til greina en að koma til baka í Leikni samkvæmt heimasíðu Breiðholtsliðsins.
Steinarr, sem er 28 ára, mun berjast um vinstri bakvarðarstöðuna hjá Leikni við Gest Inga Harðarson sem kom til liðsins frá Aftureldingu í byrjun vetrar.




