Lippi: Ensku liðin eru í raun ekki ensk
Marcello Lippi, þjálfari ítalska landsliðsins er ekki sammála því að lið frá Englandi séu ráðandi í Meistaradeild Evrópu þar sem þau séu í raun ekki ensk.
Enskt lið hefur komist í úrslitaleik Meistaradeildarinnar síðustu fimm ár þar sem bæði Liverpool og Manchester United hafa unnið keppnina, en bæði lið hafa tvisvar spilað til úrslita á síðustu árum ásamt því að Arsenal og Chelsea hafa leikið þar, en ekki sigrað.
Ítölsk lið hafa ekki fagnað góðum árangri í keppninni þar sem einungis AC Milan hefur unnið Meistaradeildina á þessari öld, árin 2003 og 2007. Í fyrri leiknum þá spilaði Juventus til úrslita en það eru einu ítölsku liðin sem hafa komist í úrslitaleik deildarinnar.
,,Manchester United, Chelsea og Arsenal skipa enska boltann. Liðin eru með erlenda eigendur, erlenda þjálfara og flestir leikmenn liðanna eru erlendir, svo hvað er enskt við þau? Ekkert sérstaklega mikið," sagði Lippi.
,,Er eitthvað ítalskt eftir í Inter sem er með leikmenn frá öllum löndum og erlendan þjálfara? Eða AC Milan sem er þó með einhverja ítalska leikmenn, þau eru vissulega ítölsk en ekki tákn ítalska fótboltans."
,,Palermo, Chievo, Genoa og Cagliari er ítalskur bolti og lið sem spila virkilega góðan bolta eins og ítalska landsliðið," sagði Lippi að lokum.