Grindavík semur við bróður Ondo (Staðfest)
Grindavík hefur samið við Loic Ondo en hann er yngri bróðir framherjans Gilles Mbang Ondo sem hefur leikið með liðinu undanfarin tvö ár.
Loic, sem verður tvítugur á þessu ári, lék síðast í Frakklandi en Grindvíkingar bíða nú eftir að hann fái leikheimild.
,,Hann er búinn að standa sig virkilega vel. Hann er ungur, er að læra og ég sé að ég get vel notað hann í sumar," sagði Luka Kostic þjálfari Grindavíkur við Fótbolta.net í dag.
Loic og Gilles Mbang koma báðir frá Gabon. Loic er varnarmaður en Gilles Mbang hefur hins vegar látið til sín taka á hinum enda vallarins.
,,Þetta eru ólíkir leikmenn en þeir eru samt báðir fljótir, sterkir í loftinu og það er mikill kraftur í þeim."
Grindavík hefur auk Loic fengið Alexander Magnússon frá Njarðvík, Auðun Helgason frá Fram, Matthías Örn Friðriksson frá Þór og Rúnar Dór Daníelsson frá Víði.
Þá eru Grindvíkingar búnir að fá Grétar Ólaf Hjartarson og Marko Valdimar Stefánsson aftur úr meiðslum frá því á síðasta tímabili en Luka segir óljóst hvort að félagið styrki sig meira.
,,Við erum búnir að styrkja okkur töluvert. Við eru í rólegheitum að líta í kringum okkur. Ef við finnum eitthvað spennandi skoðum við það en annars spilum við á þessum strákum. Við höfum fulla trú á þessum hóp," sagði Luka.