Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 17. mars 2010 06:00
Magnús Már Einarsson
Valur Gunnarsson lánaður frá Leikni í KB (Staðfest)
Valur Gunnarsson.
Valur Gunnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Knattspyrnufélag Breiðholts hefur fengið mikinn liðsstyrk lánaðan frá móðurfélagi sínu Leikni. Það er markvörðurinn Valur Gunnarsson sem mun leika með KB í 3. deildinni í sumar.

Valur er reynslumikill markvörður, fæddur 1982 og er einn leikjahæsti leikmaður Leiknis frá upphafi. Hann hefur leikið með liðinu í 3., 2. og 1. deild. Í fyrra var hann varamarkvörður fyrir Eyjólf Tómasson, ungan uppalinn Leiknismann.

Valur mun áfram æfa með Leikni en spila leiki KB. Möguleiki er á að hann verði kallaður til baka í Leikni ef á þarf að halda.

Fleiri leikmenn fengu félagaskipti í KB í gær. Þar á meðal er miðjumaðurinn Ingþór Theodór Guðmundsson sem kemur aftur til KB frá Hamar í Hveragerði. Ingþór lék með KB 2007 og 2008.
Slapp
banner