Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 17. mars 2010 06:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Heimasíða KSÍ 
Dalvík/Reynir tekur sæti Huginn í B deild Lengjubikarsins
Mynd: Heimasíða Dalvíkur/Reynis
Huginn hefur dregið sig úr keppni í Lengjubikar karla og því hefur Dalvík/Reynir tekið sæti liðsins í riðli eitt í B deildinni.

Í kjölfar þess að Dalvík/Reynir var flutt í B-deild hefur mótanefnd KSÍ ákveðið að sameiginlegt lið Hugins og Spyrnis taki sæti Dalvíkur/Reynis í C-deild karla.

Við þetta verða breytingar á leikjum en leikurinn Huginn/Spyrnir - Einherji 24. apríl verður leikinn á Fellavelli en ekki í Boganum

Nýr leikdagur verður ákveðinn síðar fyrir leikinn Huginn/Spyrnir - Draupnir sem átti að fara fram í gær 16.mars og hefur verið frestað.
Slapp
banner
banner