Heimild: Sky
Park Ji-Sung, leikmaður Manchester United segir að vonbrigðin að hafa misst af úrslitaleik United gegn Chelsea í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu fyrir tveimur árum hafi gert hann staðráðinn í að vera áfram.
Park, sem kom til United frá PSV Eindhoven árið 2005 var í byrjunarliði United í úrslitaleiknum gegn Barcelona ári síðar.
,,Ég varð fyrir miklum vonbrigðum þetta kvöldið (gegn Chelsea). Ég vildi ekki fara af því að mér fannst ég geta gert betur hjá United. Þess vegna var ég áfram," sagði Park.
,,Ég hafði alltaf trú á því að við myndum komast í annan Meistaradeildarúrslitaleik, ég bjóst bara ekki við að hann yrði árið eftir," bætti Park við.



