Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
   mið 17. mars 2010 11:33
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Búið að taka níu stig af Portsmouth
Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Hermann Hreiðarsson og félagar í Portsmouth falli úr ensku úrvalsdeildinni eftir að níu stig voru tekin af liðinu í dag.

Hermann verður því væntanlega fyrsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi til að fá þann vafasama heiður að falla með fimm mismunandi félögum.

Portsmouth varð á dögunum fyrsta félagið í ensku úrvalsdeildinni til að fara í greiðslustöðvun og þá varð ljóst að félagið myndi missa níu stig.

Enska úrvalsdeildin hefur núna staðfest refsinguna og Portsmouth missti níu stig í dag.

Portsmouth er núna með tíu stig í neðsta sæti deildarinnar, 17 stigum frá öruggu sæti þegar að níu leikir eru eftir.
Slapp
banner
banner