Heimild:  
fös 19.mar 2010 19:00 Magnús Már Einarsson,
Sextán leikmenn á Ítalíu í bann fyrir að bera sorgarbönd
Mynd: NordicPhotos
Sextán leikmenn hjá ítalska félaginu San Luca hafa verið dæmdir í tveggja leikja bann eftir að þeir léku með sorgarbönd til minningar um mafíósa sem lést í nóvember síðastliðnum.

San Luca, sem leikur í áttundu deild, hefur einnig misst þrjú stig og fengið 600 evra sekt fyrir atvikið.

Leikmennirnir léku með sorgarbönd í einum leik til minningar um Antonio Pelle sem að var í Calabria mafíunni á Ítalíu.

Leikmenn San Luca voru með sorgarböndin þar sem að Pelle var skyldur manni hjá félaginu.
Nýjustu fréttirnar