fim 18.mar 2010 19:53 Hafliði Breiðfjörð,
Lengjubikarinn: Ragnar tryggði ÍA sigur á Fylki í lokin
Ragnar Leósson sem er hér í gulu tryggði ÍA sigur á Fylki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA 2-1 Fylkir:
1-0 Fannar Freyr Gíslason ('4)
1-1 Tómas Joð Þorsteinsson ('19)
2-1 Ragnar Leósson ('90, víti)

Ragnar Leósson tryggði ÍA sigur á Fylki í Lengjubikar karla nú í kvöld en sigurmarkið kom úr vítaspyrnu á lokamínútunni.

Skagamenn höfðu komist yfir strax á fjórðu mínútu leiksins. Sending kom þá inn í teiginn utan af vinstri kanti þar sem Ragnar Leósson komst í dauðafæri en skallaði í stöng en þaðan barst boltinn til Fannars Freys Gíslasonar sem skoraði af stuttu færi.

Tómas Joð Þorsteinsson jafnaði svo metin um miðjan fyrri hálfleikinn. Hann kom þá upp vinstri kantinn, fór í gegnum vörn ÍA og skoraði með góðu skoti í fjærhornið.

Leikurinn var nokkuð jafn en Skagamenn áttu til dæmis tvö dauðafæri í fyrri hálfleik sem þeir nýttu ekki. Meira var um miðjuþóf í síðari hálfleik en Fylkismenn voru samt sterkari framan af.

Það var svo á lokamínútunni sem Skagamenn tryggðu sér sigur. Þá var brotið á Eggerti Kára Karlssyni innan vítateigs og dæmd vítaspyrna. Ragnar Leósson tók vítið og skoraði af öryggi. Þannig tryggði hann ÍA sigurinn í leiknum og er liðið núna langefst í riðlinum með 13 stig en Fylkismenn sitja eftir með sárt ennið með fjögur stig um miðjan riðilinn.
Nýjustu fréttirnar