fim 18.mar 2010 20:20 Gunnar Gunnarsson,
Evrópudeildin: Fulham framkvæmdi kraftaverk og sló út Juve
Clint Demsey fagnar hér fjórða marki Fulham gegn Juventus á Craven Cottage í kvöld.
Mynd: NordicPhotos
Þeir fögnuðu vel í leikslok, Simon Davies og Aaron Hughes leikmenn Fulham með rándýrar Juve-treyjur sem minjagrip.
Mynd: NordicPhotos
- ævintýralegur sigur Lundúnaliðsins gegn einu mesta stórveldi ítalskrar knattspyrnu
Fjórum leikjum er lokið í 16 liða úrslitum Evrópudeildarinnar en alls eru átta leikir á dagskrá í kvöld en um er að ræða seinni viðureignir liðanna.

Það er óhætt að segja að óvæntir hlutir hafi átt sér stað á Craven Cottage heimavelli Fulham þar sem heimamenn tóku á móti Juventus en ítalska liðið hafði unnið fyrri leikinn 3-1.

Ekki voru margir sem höfðu trú á að Fulham ætti nokkurn möguleika á að vinna upp þetta tveggja marka forskot Juventus og útlitið varð ekki bjartara fyrir enska liðið þegar David Trezeguet skoraði strax á annarri mínútu fyrir gestina.

En leikmenn Fulham neituðu að leggja árar í bát og Bobby Zamora jafnaði leikinn skömmu síðar þegar hann tók boltann á brjóstið í vítateig Juventus og þrumaði honum því næst í netið.

Fabio Cannavaro fauk út af í liði Juventus eftir brot á Zoltan Gera en hann átti eftir að koma mikið við sögu í leiknum. Ungverjinn skoraði nefnilega næstu tvö mörk Fulham og jafnaði þar með einvígið í 4-4.

Clint Dempsey reyndist síðan hetja Fulham þegar hann skoraði stórglæsilegt mark þegar átta mínútur voru til leiksloka en Bandaríkjamaðurinn lyfti knettinum glæsilega yfir markvörð Juventus sem gat aðeins horft á knöttinn hafna efst í markhorninu.

Einnig er rétt að geta þess að Werder Bremen og Valencia gerðu jafntefli í átta markaleik þar sem David Villa skoraði þrennu fyrir gestina en spænska liðið komst áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.

Öll úrslit kvöldsins og markaskorarar:

Fulham 4-1 Juventus: (Samanlagt 5-4)
0-1 David Trezeguet ('2)
1-1 Bobby Zamora ('9)
2-1 Zoltan Gera ('39)
3-1 Zoltan Gera ('49)
4-1 Clint Dempsey ('82)
Rauð spjöld: Fabio Cannavaro, Juventus ('27), J. Zebina, Juventus ('90)

Marseille 1-2 Benfica: (Samanlagt 2-3)
1-0 M. Niang ('70)
1-1 M. Pereira ('75)
1-2 D. Kardec ('90)
Rautt spjald: Hatem Ben Arfa, Marseille ('90)

Standard Liege 1-0 Panathinaikos: (Samanlagt 4-1)
1-0 D. Mbokani ('45)

Werder Bremen 4-4 Valencia: (Samanlagt 5-5)
0-1 David Villa ('3)
0-2 J. Mata ('15)
1-2 H. Almeida ('26)
1-3 David Villa ('45)
2-3 Thorsten Frings ('57, víti)
3-3 M. Marin ('62)
3-4 David Villa ('66)
4-4 Claudio Pizarro ('84)

Valencia fer áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.
Nýjustu fréttirnar