Lengjubikarinn: Kjartan Henry með fjögur í 0-8 sigri KR á ÍR
Kjartan Henry skoraði fjögur mörk fyrir KR í stórsigri á ÍR.
ÍR 0-8 KR:
0-1 Kjartan Henry Finnbogason ('4)
0-2 Viktor Bjarki Arnarson ('18)
0-3 Kjartan Henry Finnbogason ('44)
0-4 Kjartan Henry Finnbogason ('46)
0-5 Grétar Sigfinnur Sigurðarson ('68)
0-6 Kjartan Henry Finnbogason ('69)
0-7 Gunnar Kristjánsson ('84)
0-8 Gunnar Kristjánsson ('90)
KR-ingar áttu auðvelt með að bursta ÍR í Lengjubikar karla í kvöld en mikill getumunur var á liðunum og KR skoraði átta mörk, þar af skoraði Kjartan Henry Finnbogason fjögur
Kjartan Henry kom KR yfir strax á fjórðu mínútu. Bjarni Guðjónsson tók þá aukaspyrnu á miðjum velli og boltinn var að fara afturfyrir endamörk þegar Grétar Sigfinnur Sigurðarson skallaði og hélt boltanum inná, sendi fyrir markið þar sem Kjartan Henry skallaði inn.
Viktor Bjarki Arnarson bættii öðru marki við fyrir KR eftir 18 mínútna leik er hann komst í gegnum vörn KR og skoraði með góðu skoti í teignum. Tíu mínútum síðar bjargaði Eyþór Guðnason á línu eftir skot Kjartans Henrys.
Sitthvorum megin við hálfleikinn bætti Kjartan Henry við tveimur mörkum. Fyrst eftir að Guðjón Baldvinsson sendi á hann stutta sendingu í teignum í fyrri háfleik og svo í byrjun þess síðari þegar Gunnar Kristjánsson lagði á hann. Staðan þarna orðin 0-4 fyrir KR-inga sem voru síður en svo hættir.
Grétar Sigfinnur Sigurðarson skoraði fimmta markið á 68. mínútu með skalla eftir horsnpyrnu og mínútu síðar skoraði Kjartan Henry sitt fjórða mark og sjötta mark KR. Skömmu eftir það bjargaði Atli Guðjónsson svo á línu frá Kjartani Henry sem átti frábæran dag en fór af velli skömmu eftir þetta.
ÍR-ingar sóttu aðeins í sig veðrið eftir sjötta mark KR og virtist sem meiri barátta hafi komið í liðið eftir það. Þrátt fyrir það héldu KR-ingar áfram að skora og Gunnar Kristjánsson bætti við sjöunda markinu er hann slapp einn í gegn þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum og hann var svo aftur á ferðinni fimm mínútum síðar er hann skoraði áttunda mark KR eftir að hafa sloppið innfyrir vörn ÍR.
ÍR: Þorsteinn V. Einarsson, Trausti Björn Ríkharðsson, Elvar Lúðvík Guðjónsson (Atli Guðjónsson '51), Eyþór Guðnason (Jón Gísli Ström '64), Axel Kári Vignisson (Hrannar Karlsson '58), Guðjón Gunnarsson, Sindri Snær Magnússon, Árni Freyr Guðnason, Kristján Ari Halldórsson, Björn Viðar Ásbjörnsson (Davíð Már Stefánsson '46), Guðfinnur Þórir Ómarsson (Andri Björn Sigurðsson '73).
KR: Einar Andri Einarsson, Dofri Snorrason, Skúli Jón Friðgeirsson, Grétar Sigfinnur Sigurðarson, Guðmundur Reynir Gunnarsson, Bjarni Guðjónsson, Viktor Bjarki Arnarson (Gunnar Kristjánsson '46), Óskar Örn Hauksson, Gunnar Örn Jónsson (Ingólfur Sigurðsson '65), Guðjón Baldvinsson, Kjartan Henry Finnbogason (Hróar Sigurðsson '73).
Gul spjöld: Davíð Már Stefánsson ('67)